Hótel Rangá

Add a comment

Jæja, þá er hjólað í vinnuna búið. Tókum vel á því í þetta skiptið. Heildarniðurstaða samt sama og í fyrra, 4.sæti í kílómetrar per starfsmann. Náði að doubla KM fjölda frá því í fyrra eða rúmlega 520 KM :)

22.maí hélt Basis árshátíð á Hótel Rangá og að sjálfsögðu reif kjadlinn í reiðfákninn og hjólaði að heimann. Veðrið var sérstaklega gott. Smá vestanátt í bakið annars logn og sólskin. Leiðin er rétt rúmlega 100kíló og þess vegna var hlaðið upp vatn í líkamanum kvöldið áður. Venjan er að taka 2 lítra af vatni á móti teskeið af salti. Undirbúningur fyrir daginn þvældist þó fyrir sem varð til þess að ég fór að sofa með aðeins rétt rúmlega líter af vatni til þess að vega á móti salti. Þetta varð líklega valdur af því að þegar að komið var að hellisheið var brimsaltur sviti að leka í augun á mér og ég þurfti að stoppa nokkrum sinnum til þess að vinda svita úr púðunum í hjálminum. 2,5 lítrar af vökva voru með og ég sturtaði þeim í mig mun hraðar en venjulega til þess að vökva mig. Eftir heiðina sett á cruise control enda ekki brattar brekkur eftir á leiðinni.

Þegar ég kom að Selfoss brúnni ákvað ég að færa mig yfir á göngustíg sem yfir. Akreinarnar fyrir bílana eru mjóar og hélt í að þetta væri sterkur leikur að dóla mér yfir brúnna á kanntinum. Þegar stígurinn kemur að brúnni kemur harður S-hlykkur og vegriðið og grindverkið þrengjast. Það var frekar súrt að akkrúrat í þrengingunni var hrúga af möl og sandi búið að sagnast upp. Ég á um 20km hraða í að koma út úr S-hlykk varð til þess að ég misti grip og bombaði á vegriðið og endaði þar frekar aumur eftir högg á hné. Það fauk frekar í mig og ég hjólaði sem hraðast í gegnum Selfoss bæ. Ég var með smá hugmynd að fara í bílalúgu KFC sem djók og panta mér einhvern viðbjóð og festa á filmu en ég var engu brandarastuði eftir slag við mannvirkinn á staðnum.

Næst á dagskrá er Bláalónsþrautin 13.júní. Stefni á að endurtaka leikinn frá því í fyrra og fara styttri leiðina eða um 45 í 60 sem eru í boði. Það verður ágætis tilbreyting að mæta aðeins minna ölvaður en í fyrra :) en þá var djammað til 4 og vaknað fyrir 8 til þess að mæta í slaginn. Grófari og breiðari dekk eru kominn undir og ný keðja og kasetta sem var allt orðið frekar slitið.

Details úr Hótel Rangá ferð (minni á view in metric efst til hægri): http://connect.garmin.com/activity/34502586

70-640

1 Comment

Sæti

Microsoft Certified Technology Specialist (MCTS): Windows Server 2008 Active Directory, Configuration

Jæja, þá er eitt próf búið af þrem sem ég þarf að klára. Ég ákvað að skella mér í fyrsta prófið bara til þess að prófa. Lærði ekki jafn mikið og ég vildi en kom sjálfum mér á óvart og náði kvikindinu. Mjög sáttur með stöðu mála. Þá er maður búinn að fá smá tilfinningu fyrir því hvernig þetta fer fram. Ég var massa stressaður en ætlaði upphaflega að vera með kæruleysi í fyrirrúmi. Núna er í gangi hjá Microsoft það sem er kallað Second shot sem virkar þannig að innan ákveðins tíma er frítt að reyna í annað sinn við próftöku. Ég var nokkuð búinn að neggla niður hvenær ég ætlaði að reyna aftur við prófið en eftir því sem leið á þessa 3 tíma sem prófið tekur þá fór ég að sannfærast um að þetta gengi ágætlega. Þegar maður er búinn smellir maður bara á hnapp í tölvunni og bíður eftir niðurstöðu. Magnþrúnginn stund, einn í skólastofu. Svo byrtist niðurstaðan á skjánum innan um einhvern leiðinda texta. Ég sá fyrir mér blikkandi rauða stafi sem sögðu að maður hefði náð þessu en það var fátt um 3D acceleration í niðurstöðunni.

Nú er árshátíð nálagt gossvæðinu næstu helgi og ég held ég hjóli þangað og sletti rækilega upp á alla veggi húsins í telefni af þessu. Nú eru aðein 2 próf í viðbót til þess að fá stóra tattúið frá Bill Gates.

Ofan á allt saman þá fékk ég loksins úthlutað Beta útgáfu af Starcraft 2 þannig að ég held ég lesi ekki meira sem eftir lifir árs :P

Hjóla í vinnuna

1 Comment

Jæja, þá er komið að því að koma þessu tímabili af stað. Ég hef lítið annað gert en að vinna og læra, en nú er komið að því að hjóla þar til maður dettur niður dauður :)

Það sem hefur gerst nýlega er að ég er kominn á Continental city ride dekk sem duga fáranlega vel og eru frekar slétt. Það er harðara gúmmí í þeim og til að mynda fór í Bláalónþrautina með svona dekk að framan. Ég er ennþá með það dekk á og lítur ennþá út fyrir að vera lítið notað. Svo er ég að prófa mig áfram í Craft vindjakka. Hann hefur verið að virka, en hann hrindir ekki miklu vatni frá sér en hann andar líka vel. Svo lengi sem maður hjólar og er ekki að stoppa lengi þá ætti þessi jakki að höndla flest veður. Málið er að halda á sér hita þannig að útgúfunin sé næg, annars fær maður að finna þegar regnvatnið vinnur sig inn að skinni . brrrrrr. Þá verður hjólatúrinn HELLAÐUR!

Ég hjólaði framúr tveimur á leið í vinnuna. Hvor í sínu lagi. Það sem var athugavert við þessa náunga var að þeir voru drekkhlaðnir af dóti. Þetta var svipað og ég myndi taka með mér í 3 daga fjallahjólaferð:o Það getur vel verið að þess hafi verið þörf í þeirra tilfelli en ég myndi fljótt missa móðinn ef ég þyrfti að drössla þessu öllu með mér í vinnuna á hverjum degi. Þegar maður þekkir hvernig það er að fara hratt og létt upp brekkur bæjarins þá er erfitt að leggja í leiðangur með svona mikinn búnað. Annað sem var athyglisvert við þessa náunga var að þeir voru á nögglum. Ég veit ekki með ykkur en þessi vetur kom aldrei. Ömurlegt, ég fór aldrei á skíði  þetta árið. En niðurinn frá þessum var rosalegur. Þetta var eins og þegar 44 tommu jepplingur tekur framúr manni. Á breiðum nagladekkjum og drekkhlaðinn, þessir menn eru í góðu formi fyrst þeir koma þessu öllu saman á milli staða.

Auglýsi eftir meiri frítíma ef einhver á auka . . .

Add a comment

hmmm, kannski ætti þessi færsla að heita back off the track. Hef varla hreyft legg né lið. Byrjaði á tölvunámskeiði 1.feb og fattaði að ég var að afsala öllum mínum frítími með því að skrá mig í þetta. Yfirferðin er hröð og efnið mikið. Þar sem þetta tekur allan minn tíma hef ég ekki getað sint markmiði mínu í hreyfingu og það sem verra er að ég ét eins og ég sé enn að hreyfa mig. Það er farið að taka sinn toll á líkama og sál að vera í þessari lægð, en það koma tímar og það koma ráð.

Ég var svo heppinn að fá hlaupaskó í jólagjöf og hef ég ákveðið að halda þeim. Þegar maður fer að skoða hlaupaskó á þessu leveli þá fer faranlegur tími í pælingar um styrkingar og mýkt, sem betur fer hafa bræður mínir nýlega velt sér upp úr þessu sem auðveldaði mér valið. Það er frekar súrt að horfa á þessa fínu skó og nota þá ekkert.  En þetta lagast. Ég skal ná að búa til tíma til þess að hreyfa mig meira en þetta.

Núna er lífshlaupið í gangi og ég fer að verma síðasta sætið í fyrirtækinu mínu, af þeim sem skrá hreyfingu, en fyrirtækið mitt samanstendur af tæknimönnum og bókara. Það er ferlegur árangur ef árangur mætti kalla. Ef einhver á auka tíma í sólarhringnum sem ég gæti notað þá væri það vel þegið. Call me!