Baddilicious

2 Comments

Fimmtudagsbaddinn hlýtur að vera besti baddinn.
Það er með baddann eins og aðrar íþróttir að ef það á að stunda þetta á hærra plani þá þarf að kaupa gæjur. Græjur sem kosta fáranlegan pjening. Við erum nokkrir gamlir skólafélagar sem erum búnir að tuskast í þessu í nokkur ár og mönnum farið að finnast við þurfa betri græjur. Í Badda eru notaðar flugur eða boltar. Ég veit ekki íslenska heitiið yfir þá og það fyndna er að það vita hinir ekki heldur. Við höfum þá bara tekið upp beina þýðingu á þessum mikilvæga hlut baddans: Þeytiböllur. Utan á stauk af böllum stendur skýrum stöfum shuttlecock. Þá hlýtur að vera sjálfsagt að kalla þetta þeytiböll.
Bellirnir verða frekar slappir við notkun og missa flugið og vildum við því kanna hvað kostar að fá sér keppnis-belli. Við náðum nokkuð góðum díl á bretti af böllum en það hljóðaði upp á sömu upphæð og kostar okkur að hafa völlinn í heilan vetur. Sökum þeirrar ólgu sem ríkir í efnahagslífi baddamanna urðum við frá að hverfa og nota ódýra belli sem duga skammt í senn.
FYI baddi=badminton
Trausti tekur á því

This entry is filed under Sports. You can follow any responses to this entry through RSS 2.0. You can leave a response, or trackback from your own site.

2 Responses to “Baddilicious”


  1. maple

    látið bara maple kaupa fyrir ykkur. ég var í einhverri sportvöruverslun um dæinn og ætlaði að kíkja á hvað bellir kostuðu, en fann þá ekki, fann bara tenniskúlur.

  2. Haukur

    Já. Ég hef spurt fólk sem er á ferðinni í USA. Það er alltaf sama sagan. Þeir vita ekkert hvað Baddi er.

Post your comment