Hjólasession023

2 Comments

Hjólarúntur í góðaveðrinu. Suðvestan 4m/s og skýjað. Rigndi aðeins á mig í lokinn og kólnaði aðeins á tánum. Scott skórnir eru með neti fremst yfir tánum, sem er mjög gott þegar heitt er en það rignir og blæs beint á tærnar.
Ég hjólaði úr Garðabænum, meðfram sjónum, yfir Arnarnesið og fór svo út fyrir Kársnesið. Vindurinn var beint í fangið á leið út nesið en það nýttist ekki alveg í bakaleiðinni þar sem húsin skýldu mér. Næst fór ég út Nauthólsvíkina og já aftur upp í vindinn, en ég fór hjólastíginn hjá Olíutanknum við flugvöllinn sem leiðir mann út Einarsnesið sem verður að Suðurgötu. Náði góðum hraða upp Suðurgötuna með vindinn í bakið og beygði niður hjá Þjóðminjasafninu. Beygði svo niður að flugvallasvæðinu og fór Nauthólsvíkurleiðina aftur heim.
Gott að komast út í hjólatúr. Hef bara verið að gormast í spinning undanfarið. Nú er stefnan tekin á að ná betri tökum á sundinu og þá er hægt að fara að taka þríþrautina ;)
Garmin data: Garmin

This entry is filed under Cycling. You can follow any responses to this entry through RSS 2.0. You can leave a response, or trackback from your own site.

2 Responses to “Hjólasession023”


  1. maple

    þríþrautin maður, verður að rústa henni – verður fyrst að kíkja í heimsókn og fara í þríþrautarbúðina í götunni hérna

  2. Haukur

    Cool. ég verð að kíkja á það. ég þarf bara að safna mér fyrst fyrir því. Kostar smáveigis að flúga fyrir utan að ég væri líklegur til þess að kaupa mér hjól þarna úti ;)

Post your comment