Back on track

3 Comments

Jæja, þá er maður kominn í gang eftir hátíðarnar. Það tók aðeins á að koma sér af stað en alveg frábært.

Ég nýtti tækifærið og fjárfesti í nýrri sundskýlu í Útilíf í Kringlunni. Sú sem ég hef notað hingað til eru svona síðar strandbuxur en þær voru í stærri kantinum á mig. Þannig að stórar buxur sem eru of stórt númer á mig er full mikið af því góða. Þegar ég syndi brignusund í þeim virka þær eins og fallhlíf og ég finn hvað þær toga. Það var þá tilkomið að fara alveg í þver öfuga átt og kaupa minnstu sundskýlu sem til var. Ég var samt ekki til í að fara alveg í speedo breifs en það kemur bara næst. Þessar eru það sem er kallað er “square leg suit”. Ég er búinn að fara tvisvar í þeim í sund og annað hvort eru þær ógeðslega cool eða þá að ég lít fáranlega út í þeim því það eru allir að horfa á mig :S

Spinning er það sem er búið að stunda mest og styrk æfingar. Spinning er ágæt til þess að halda brennslunni uppi og nota aðeins hjólavöðvana en það er bara upp að vissu marki. Það er aldrei eins og að fara út að hjóla. Ég fylgi reyndar ekki alltaf öllum fyrirmælum í þessum tímum vegna þess að mér finnst ég fá meira út úr því að hafa nokkuð þungt á og hjóla lengi heldur en að vera sífellt að skipta um stöðu og þyngd.

Hlaup hafa verið alveg útundan hjá mér en ég verð að fara að bæta úr því. Dauðlangar í nýja hlaupaskó. Þessir sem ég er á eru gömlu Puma hlaupaskórnir sem ég keypti þegar ég var 18 ára og það er frekar langt síðan það var, því miður.

Framundan er að Stebbi er búinn að kaupa trainer sem maður skellir undir hjólið í stofunni hjá sér. Hann er búinn að hóta því að lána mér kvikindið og ég bíð spenntur. Dæmi um trainer. Græjan er stillanleg í þyngd og halla auk þess sem að tölva segir til um watt orku sem maður skilar, hraða og púls. Einnig er hægt að þyngja í tölvunni þannig að hægt er gera eitthvað program. Hægt er að fá sérstaka training DVD diska sem maður skellir í tækið og bull svitnar svo fyrir framan sjónvarpið og fyrir framan familíuna. Ég er að spá í að taka þann pakkann á þetta. Einnig ætla ég að skella speed/cadance mælinum á hjólið, reyna að documenta þetta í bak og fyrir.

This entry is filed under Misc, Sports. You can follow any responses to this entry through RSS 2.0. You can leave a response, or trackback from your own site.

3 Responses to “Back on track”


  1. maple

    er ekki málið að vera úti á svölum með trainerinn frekar en að eyðileggja parketið með bleytu

  2. Haukur

    neeee, ég ætla bara að þrífa það. Hef ekkert verið að hjóla á því. En það er alveg gott mál að vera með þetta úti á svölum til þess að fá ferska loftið, en ég nenni ekki að redda sjónvarpinu út á svalir þ.e.a.s. ef ég ætla að nota einhverja örfandi mynd meðan ég hjóla.

  3. maple

    debbie does dallas

Post your comment