Hjóla í vinnuna
Jæja, þá er komið að því að koma þessu tímabili af stað. Ég hef lítið annað gert en að vinna og læra, en nú er komið að því að hjóla þar til maður dettur niður dauður
Það sem hefur gerst nýlega er að ég er kominn á Continental city ride dekk sem duga fáranlega vel og eru frekar slétt. Það er harðara gúmmí í þeim og til að mynda fór í Bláalónþrautina með svona dekk að framan. Ég er ennþá með það dekk á og lítur ennþá út fyrir að vera lítið notað. Svo er ég að prófa mig áfram í Craft vindjakka. Hann hefur verið að virka, en hann hrindir ekki miklu vatni frá sér en hann andar líka vel. Svo lengi sem maður hjólar og er ekki að stoppa lengi þá ætti þessi jakki að höndla flest veður. Málið er að halda á sér hita þannig að útgúfunin sé næg, annars fær maður að finna þegar regnvatnið vinnur sig inn að skinni . brrrrrr. Þá verður hjólatúrinn HELLAÐUR!
Ég hjólaði framúr tveimur á leið í vinnuna. Hvor í sínu lagi. Það sem var athugavert við þessa náunga var að þeir voru drekkhlaðnir af dóti. Þetta var svipað og ég myndi taka með mér í 3 daga fjallahjólaferð:o Það getur vel verið að þess hafi verið þörf í þeirra tilfelli en ég myndi fljótt missa móðinn ef ég þyrfti að drössla þessu öllu með mér í vinnuna á hverjum degi. Þegar maður þekkir hvernig það er að fara hratt og létt upp brekkur bæjarins þá er erfitt að leggja í leiðangur með svona mikinn búnað. Annað sem var athyglisvert við þessa náunga var að þeir voru á nögglum. Ég veit ekki með ykkur en þessi vetur kom aldrei. Ömurlegt, ég fór aldrei á skíði þetta árið. En niðurinn frá þessum var rosalegur. Þetta var eins og þegar 44 tommu jepplingur tekur framúr manni. Á breiðum nagladekkjum og drekkhlaðinn, þessir menn eru í góðu formi fyrst þeir koma þessu öllu saman á milli staða.

This entry is filed under Cycling. You can follow any responses to this entry through RSS 2.0. You can leave a response, or trackback from your own site.
djös nagli ertu. Samt ekki á nöglum.