Hátíðar
Úff.
Ekkert nennt að skrifa á þetta. Desember byrjaði með prófum og verkefnaskilum og svo tók vinnan við. Hef lítið hreyft mig, úbs.
Það eru spennandi dagar framundan. Stebbi keypti trainer til þess að mounta undir hjólið þannig að hann getur svitnað inni í stofu. Var búinn að fá nóg af þrekhjólinu sem var með sæti á við lazyboy stól. Hann ætlar að lána mér þetta til þess að gera prófanir með cadance og power.
Tengdó splæsti í speed og cadance mæli fyrir Garmin úrið þannig að nú fer að koma meira data úr hverjum túr. En nú er 2010 að ganga í garð og ég kasta á ykkur hátíðarkveðjum. Sjáumst á nýju ári.
