Add a comment June 2nd, 2010 by Haukur
Jæja, þá er hjólað í vinnuna búið. Tókum vel á því í þetta skiptið. Heildarniðurstaða samt sama og í fyrra, 4.sæti í kílómetrar per starfsmann. Náði að doubla KM fjölda frá því í fyrra eða rúmlega 520 KM
22.maí hélt Basis árshátíð á Hótel Rangá og að sjálfsögðu reif kjadlinn í reiðfákninn og hjólaði að heimann. Veðrið var sérstaklega gott. Smá vestanátt í bakið annars logn og sólskin. Leiðin er rétt rúmlega 100kíló og þess vegna var hlaðið upp vatn í líkamanum kvöldið áður. Venjan er að taka 2 lítra af vatni á móti teskeið af salti. Undirbúningur fyrir daginn þvældist þó fyrir sem varð til þess að ég fór að sofa með aðeins rétt rúmlega líter af vatni til þess að vega á móti salti. Þetta varð líklega valdur af því að þegar að komið var að hellisheið var brimsaltur sviti að leka í augun á mér og ég þurfti að stoppa nokkrum sinnum til þess að vinda svita úr púðunum í hjálminum. 2,5 lítrar af vökva voru með og ég sturtaði þeim í mig mun hraðar en venjulega til þess að vökva mig. Eftir heiðina sett á cruise control enda ekki brattar brekkur eftir á leiðinni.
Þegar ég kom að Selfoss brúnni ákvað ég að færa mig yfir á göngustíg sem yfir. Akreinarnar fyrir bílana eru mjóar og hélt í að þetta væri sterkur leikur að dóla mér yfir brúnna á kanntinum. Þegar stígurinn kemur að brúnni kemur harður S-hlykkur og vegriðið og grindverkið þrengjast. Það var frekar súrt að akkrúrat í þrengingunni var hrúga af möl og sandi búið að sagnast upp. Ég á um 20km hraða í að koma út úr S-hlykk varð til þess að ég misti grip og bombaði á vegriðið og endaði þar frekar aumur eftir högg á hné. Það fauk frekar í mig og ég hjólaði sem hraðast í gegnum Selfoss bæ. Ég var með smá hugmynd að fara í bílalúgu KFC sem djók og panta mér einhvern viðbjóð og festa á filmu en ég var engu brandarastuði eftir slag við mannvirkinn á staðnum.
Næst á dagskrá er Bláalónsþrautin 13.júní. Stefni á að endurtaka leikinn frá því í fyrra og fara styttri leiðina eða um 45 í 60 sem eru í boði. Það verður ágætis tilbreyting að mæta aðeins minna ölvaður en í fyrra
en þá var djammað til 4 og vaknað fyrir 8 til þess að mæta í slaginn. Grófari og breiðari dekk eru kominn undir og ný keðja og kasetta sem var allt orðið frekar slitið.
Details úr Hótel Rangá ferð (minni á view in metric efst til hægri): http://connect.garmin.com/activity/34502586
1 Comment April 12th, 2010 by Haukur
Jæja, þá er komið að því að koma þessu tímabili af stað. Ég hef lítið annað gert en að vinna og læra, en nú er komið að því að hjóla þar til maður dettur niður dauður
Það sem hefur gerst nýlega er að ég er kominn á Continental city ride dekk sem duga fáranlega vel og eru frekar slétt. Það er harðara gúmmí í þeim og til að mynda fór í Bláalónþrautina með svona dekk að framan. Ég er ennþá með það dekk á og lítur ennþá út fyrir að vera lítið notað. Svo er ég að prófa mig áfram í Craft vindjakka. Hann hefur verið að virka, en hann hrindir ekki miklu vatni frá sér en hann andar líka vel. Svo lengi sem maður hjólar og er ekki að stoppa lengi þá ætti þessi jakki að höndla flest veður. Málið er að halda á sér hita þannig að útgúfunin sé næg, annars fær maður að finna þegar regnvatnið vinnur sig inn að skinni . brrrrrr. Þá verður hjólatúrinn HELLAÐUR!
Ég hjólaði framúr tveimur á leið í vinnuna. Hvor í sínu lagi. Það sem var athugavert við þessa náunga var að þeir voru drekkhlaðnir af dóti. Þetta var svipað og ég myndi taka með mér í 3 daga fjallahjólaferð:o Það getur vel verið að þess hafi verið þörf í þeirra tilfelli en ég myndi fljótt missa móðinn ef ég þyrfti að drössla þessu öllu með mér í vinnuna á hverjum degi. Þegar maður þekkir hvernig það er að fara hratt og létt upp brekkur bæjarins þá er erfitt að leggja í leiðangur með svona mikinn búnað. Annað sem var athyglisvert við þessa náunga var að þeir voru á nögglum. Ég veit ekki með ykkur en þessi vetur kom aldrei. Ömurlegt, ég fór aldrei á skíði þetta árið. En niðurinn frá þessum var rosalegur. Þetta var eins og þegar 44 tommu jepplingur tekur framúr manni. Á breiðum nagladekkjum og drekkhlaðinn, þessir menn eru í góðu formi fyrst þeir koma þessu öllu saman á milli staða.

3 Comments January 16th, 2010 by Haukur
Jæja, þá er maður kominn í gang eftir hátíðarnar. Það tók aðeins á að koma sér af stað en alveg frábært.
Ég nýtti tækifærið og fjárfesti í nýrri sundskýlu í Útilíf í Kringlunni. Sú sem ég hef notað hingað til eru svona síðar strandbuxur en þær voru í stærri kantinum á mig. Þannig að stórar buxur sem eru of stórt númer á mig er full mikið af því góða. Þegar ég syndi brignusund í þeim virka þær eins og fallhlíf og ég finn hvað þær toga. Það var þá tilkomið að fara alveg í þver öfuga átt og kaupa minnstu sundskýlu sem til var. Ég var samt ekki til í að fara alveg í speedo breifs en það kemur bara næst. Þessar eru það sem er kallað er “square leg suit”. Ég er búinn að fara tvisvar í þeim í sund og annað hvort eru þær ógeðslega cool eða þá að ég lít fáranlega út í þeim því það eru allir að horfa á mig :S
Spinning er það sem er búið að stunda mest og styrk æfingar. Spinning er ágæt til þess að halda brennslunni uppi og nota aðeins hjólavöðvana en það er bara upp að vissu marki. Það er aldrei eins og að fara út að hjóla. Ég fylgi reyndar ekki alltaf öllum fyrirmælum í þessum tímum vegna þess að mér finnst ég fá meira út úr því að hafa nokkuð þungt á og hjóla lengi heldur en að vera sífellt að skipta um stöðu og þyngd.
Hlaup hafa verið alveg útundan hjá mér en ég verð að fara að bæta úr því. Dauðlangar í nýja hlaupaskó. Þessir sem ég er á eru gömlu Puma hlaupaskórnir sem ég keypti þegar ég var 18 ára og það er frekar langt síðan það var, því miður.
Framundan er að Stebbi er búinn að kaupa trainer sem maður skellir undir hjólið í stofunni hjá sér. Hann er búinn að hóta því að lána mér kvikindið og ég bíð spenntur. Dæmi um trainer. Græjan er stillanleg í þyngd og halla auk þess sem að tölva segir til um watt orku sem maður skilar, hraða og púls. Einnig er hægt að þyngja í tölvunni þannig að hægt er gera eitthvað program. Hægt er að fá sérstaka training DVD diska sem maður skellir í tækið og bull svitnar svo fyrir framan sjónvarpið og fyrir framan familíuna. Ég er að spá í að taka þann pakkann á þetta. Einnig ætla ég að skella speed/cadance mælinum á hjólið, reyna að documenta þetta í bak og fyrir.
1 Comment November 27th, 2009 by Haukur
Tók ágætis æfingu í vikunni. Skriðsundið er enn að vefjast fyrir mér. Maður er alltaf að prófa eitthvað nýtt og lendir þá í því að vera staddur á byrjunarreit. Þrátt fyrir það þá er þetta aðeins í rétta átt. Ef ég syndi eins hratt og ég get yfir laugina bringusund og svo skriðsund þá er ég nokkurn veginn á sama tíma. Það segir mér að það sé hægt að æfa skriðsundið og ná betri árangri í því. Samt er ég mun þreyttari eftir skriðsundið heldur en bringusundið. Ég þarf að hvíla eftir hverja ferð 
Á síðustu æfingu prófaði ég að anda í þriðja hverju taki sem gekk ágætlega fyrir utan að þegar ég fór að þreytast þurfti ég að anda hraðar. Það þýddi að ég var að reyna að ná lofti í lungun inn á milli og þá fór allt í rugl. Takturinn ruglaðist og ég gleypti fleiri lítra af sundlaugarvatni. (En ég vill meina að það sé gott fyrir brisið)
Eftir að hafa teygað sundlaugarvatnið í 45mín. var ég orðinn frekar pirraður og drullaði mér upp úr. Nú standa yfir verkefnaskil og próf framundan í skólanum þannig að tími til þess að æfa sig er lítill. Jafnvel þegar það er tími þá nennir maður varla af stað, vill frekar bara sitja og bora í nefið. Svefnruglingur hjálpar ekki.