Archive for the 'Sports' Category

Nesjavellir

2 Comments

Laugardaginn 7.nóvember var árshátíð í Basis. Það var haldið á Nesjavöllum sem bauð náttúrulega upp á það að hjóla þangað. Ég og Stebbi vinnufélagi tókum okkur til klukkan 11 og lögðum í hann. Það hafði verið um frostmark um nóttina þannig að það var vel kalt.
Ég klæddi mig nokkuð eftir veðri en þó sparaði ég ullarsokkana sem ég hefði ekki átt að gera. Hjólaskórnir eru gerðir til þess að lofta vel um fæturna og það blés ísköldu lofti beint á þá alla leiðina.
Við fórum pípuleiðina sem liggur meðfram hitavatnsleiðslunni á Nasjavelli. Leiðin er frekar slétt og litlar hæðir. Smátt og smátt eykst hæðin þar til að komið er að Hengilsvæðinu. Þá tekur við rúmlega 100 metra hækkun á 5 kílómetrum. Brekkurnar eru stuttar en mjög brattar. Við hverja brekku er skilti sem stendur á 15% eða 16%. Ég veit ekki hvað er átt við með þessum skiltum en ég held að það hafi verið meðal áfengismagn á líter af vökva sem Stebbi hafði með sér.
Þegar á toppinn var komið þurkuðum við svitann úr gleraugunum og hjóluðum niður á Nesjavelli. Það er gaman að fara þessum megin niður en ekki upp eins og við gerðum í sumar. Niðurleiðin er 250 metra fall á 5 kílómetra og hjólið fór eins hratt og eðlisfræðin leyfir. Garmin úrið sýndi 65km/h tvisvar og 67,6km/h í lokin. Þetta er mesti hraði sem ég hef náð og mun seint slá það á þessu hjóli.
Þegar við komum á Hótel Hengil skeltum við einum köldum í okkur og hlustuðum á vinnufélagana segja okkur hvað við vorum duglegir og klikkaðir.
Næst á dagskrá var Adrenalíngarðurinn. Við fórum í tvö tæki. Róluna sem er 12 metra há róla sem maður er hífður upp í og svo er bara að kippa í spottann og þá flýgur maður af stað. Hitt var staurinn. Staurinn er 8,5metra símastaur sem maður prílar upp á og hoppar svo niður. Vinnufélagar og einn starfsmaður halda í öryggisbönd, jísk. Eftir að hafa massað þetta fórum við í pottinn og lögðum okkur fyrir átök kvöldsins.
Góð ferð og ótrúlegt veður.
Garmin
Myndir koma síðar.

Hjólasession023

2 Comments

Hjólarúntur í góðaveðrinu. Suðvestan 4m/s og skýjað. Rigndi aðeins á mig í lokinn og kólnaði aðeins á tánum. Scott skórnir eru með neti fremst yfir tánum, sem er mjög gott þegar heitt er en það rignir og blæs beint á tærnar.
Ég hjólaði úr Garðabænum, meðfram sjónum, yfir Arnarnesið og fór svo út fyrir Kársnesið. Vindurinn var beint í fangið á leið út nesið en það nýttist ekki alveg í bakaleiðinni þar sem húsin skýldu mér. Næst fór ég út Nauthólsvíkina og já aftur upp í vindinn, en ég fór hjólastíginn hjá Olíutanknum við flugvöllinn sem leiðir mann út Einarsnesið sem verður að Suðurgötu. Náði góðum hraða upp Suðurgötuna með vindinn í bakið og beygði niður hjá Þjóðminjasafninu. Beygði svo niður að flugvallasvæðinu og fór Nauthólsvíkurleiðina aftur heim.
Gott að komast út í hjólatúr. Hef bara verið að gormast í spinning undanfarið. Nú er stefnan tekin á að ná betri tökum á sundinu og þá er hægt að fara að taka þríþrautina ;)
Garmin data: Garmin

Baddilicious

2 Comments

Fimmtudagsbaddinn hlýtur að vera besti baddinn.
Það er með baddann eins og aðrar íþróttir að ef það á að stunda þetta á hærra plani þá þarf að kaupa gæjur. Græjur sem kosta fáranlegan pjening. Við erum nokkrir gamlir skólafélagar sem erum búnir að tuskast í þessu í nokkur ár og mönnum farið að finnast við þurfa betri græjur. Í Badda eru notaðar flugur eða boltar. Ég veit ekki íslenska heitiið yfir þá og það fyndna er að það vita hinir ekki heldur. Við höfum þá bara tekið upp beina þýðingu á þessum mikilvæga hlut baddans: Þeytiböllur. Utan á stauk af böllum stendur skýrum stöfum shuttlecock. Þá hlýtur að vera sjálfsagt að kalla þetta þeytiböll.
Bellirnir verða frekar slappir við notkun og missa flugið og vildum við því kanna hvað kostar að fá sér keppnis-belli. Við náðum nokkuð góðum díl á bretti af böllum en það hljóðaði upp á sömu upphæð og kostar okkur að hafa völlinn í heilan vetur. Sökum þeirrar ólgu sem ríkir í efnahagslífi baddamanna urðum við frá að hverfa og nota ódýra belli sem duga skammt í senn.
FYI baddi=badminton
Trausti tekur á því

Einn Hvalfjörður

Add a comment

Laugardaginn 12.september skelti ég mér í hjólatúr í Hvalfirði. Búið að vera leiðinda veður undanfarið en þennan laugardagsmorgun leit veðurspáin aðeins betur út. Það átti að rigna upp úr hádegi svo ég lagði snemma af stað (um 9 leitið). Stebbi vinnufélagi minn slóst í för og vorum við vel útbúnir. Frúin skutlaði okkur upp að Hvalfjarðargöngum svo við losnuðum við umferðar ruglið. Einnig eru rákir í vegkanntinn framhjá Kjalarnesi sem verður til þess að maður þarf að hjóla innar á veginum sem er rugl á þessum stað.

Veðrið lék við okkur, vegurinn var að þorna og sólin kíkti aðeins á okkur. Þegar við komum innar í fjörðinn tóku skemmtilegar brekkur á móti okkur. Það er ekkert skemmtilegra en brött brekka í góðu veðri. Við höfðum báðir nýlega keyrt Hvalfjörðinn svo við vissum að þetta biði eftir okkur.

Hvalo_elevation

Ekkert var um að ver í Hvalstöðinni en fljótlega eftir að við komum framhjá henni rákumst við á kindur á leið í réttir. Nokkrir bílar voru á ferðinni og kindur út um allt sem varð til þess að allir fór að gát. Nokkrar kindur þvældust fyrir okkur á veginum og maður hugsaði sér fréttina daginn eftir: Hjólreiðarmaður bombar á rollu í Hvalfirði!

Þegar við komum að þjóðvegi 1 stönsuðum við á bændamarkaði sem seldi allt frá fatnaði að hrefnukjöti. Hægt var að fá pulsu á staðnum og stóðst ég ekki freistinguna á meðan við biðum eftir að vera sóttir. Konan sem afgreiddi mig vildi greinilega vel því það var varla pláss fyrir pusluna í brauðinu þar sem það var fullt af lauk, steiktum og hráum, og sósum í öllum regnbogans litum.

Þetta var frábær ferð í alla staði og svæðið fjölbreytilegt og reynir á hjólreiðarmanninn í manni. Hlakka til að bruna þarna aftur.

Tæknilegar upplýsingar: Garmin data