Skiðsundsæfing
Tók ágætis æfingu í vikunni. Skriðsundið er enn að vefjast fyrir mér. Maður er alltaf að prófa eitthvað nýtt og lendir þá í því að vera staddur á byrjunarreit. Þrátt fyrir það þá er þetta aðeins í rétta átt. Ef ég syndi eins hratt og ég get yfir laugina bringusund og svo skriðsund þá er ég nokkurn veginn á sama tíma. Það segir mér að það sé hægt að æfa skriðsundið og ná betri árangri í því. Samt er ég mun þreyttari eftir skriðsundið heldur en bringusundið. Ég þarf að hvíla eftir hverja ferð ![]()
Á síðustu æfingu prófaði ég að anda í þriðja hverju taki sem gekk ágætlega fyrir utan að þegar ég fór að þreytast þurfti ég að anda hraðar. Það þýddi að ég var að reyna að ná lofti í lungun inn á milli og þá fór allt í rugl. Takturinn ruglaðist og ég gleypti fleiri lítra af sundlaugarvatni. (En ég vill meina að það sé gott fyrir brisið)
Eftir að hafa teygað sundlaugarvatnið í 45mín. var ég orðinn frekar pirraður og drullaði mér upp úr. Nú standa yfir verkefnaskil og próf framundan í skólanum þannig að tími til þess að æfa sig er lítill. Jafnvel þegar það er tími þá nennir maður varla af stað, vill frekar bara sitja og bora í nefið. Svefnruglingur hjálpar ekki.