2 Comments October 31st, 2009 by Haukur
Hjólarúntur í góðaveðrinu. Suðvestan 4m/s og skýjað. Rigndi aðeins á mig í lokinn og kólnaði aðeins á tánum. Scott skórnir eru með neti fremst yfir tánum, sem er mjög gott þegar heitt er en það rignir og blæs beint á tærnar. 
Ég hjólaði úr Garðabænum, meðfram sjónum, yfir Arnarnesið og fór svo út fyrir Kársnesið. Vindurinn var beint í fangið á leið út nesið en það nýttist ekki alveg í bakaleiðinni þar sem húsin skýldu mér. Næst fór ég út Nauthólsvíkina og já aftur upp í vindinn, en ég fór hjólastíginn hjá Olíutanknum við flugvöllinn sem leiðir mann út Einarsnesið sem verður að Suðurgötu. Náði góðum hraða upp Suðurgötuna með vindinn í bakið og beygði niður hjá Þjóðminjasafninu. Beygði svo niður að flugvallasvæðinu og fór Nauthólsvíkurleiðina aftur heim.
Gott að komast út í hjólatúr. Hef bara verið að gormast í spinning undanfarið. Nú er stefnan tekin á að ná betri tökum á sundinu og þá er hægt að fara að taka þríþrautina 
Garmin data: Garmin
2 Comments October 1st, 2009 by Haukur
Fimmtudagsbaddinn hlýtur að vera besti baddinn.
Það er með baddann eins og aðrar íþróttir að ef það á að stunda þetta á hærra plani þá þarf að kaupa gæjur. Græjur sem kosta fáranlegan pjening. Við erum nokkrir gamlir skólafélagar sem erum búnir að tuskast í þessu í nokkur ár og mönnum farið að finnast við þurfa betri græjur. Í Badda eru notaðar flugur eða boltar. Ég veit ekki íslenska heitiið yfir þá og það fyndna er að það vita hinir ekki heldur. Við höfum þá bara tekið upp beina þýðingu á þessum mikilvæga hlut baddans: Þeytiböllur. Utan á stauk af böllum stendur skýrum stöfum shuttlecock. Þá hlýtur að vera sjálfsagt að kalla þetta þeytiböll.
Bellirnir verða frekar slappir við notkun og missa flugið og vildum við því kanna hvað kostar að fá sér keppnis-belli. Við náðum nokkuð góðum díl á bretti af böllum en það hljóðaði upp á sömu upphæð og kostar okkur að hafa völlinn í heilan vetur. Sökum þeirrar ólgu sem ríkir í efnahagslífi baddamanna urðum við frá að hverfa og nota ódýra belli sem duga skammt í senn.
FYI baddi=badminton

3 Comments September 23rd, 2009 by Haukur
Örvar bróðir ákvað að taka út blómabeð hjá sér og stækka planið fyrir framan húsið sitt. Þá þarf að steypa, og hver í hvern á maður hringja þegar maður þarf að steypa. Steypumann! Eftir að tæknileg atriði voru leyst, eins og rafmagn, var farið að moka í vélina. Steypumann tók vel á því og fékk steypan að flæða eins og engin væri morgundagurinn. Það var gaman að vera steypumann í einn dag en ég held að það sé mjög erfit til lengdar.

Steypu section
Add a comment September 21st, 2009 by Haukur

Laugardaginn 12.september skelti ég mér í hjólatúr í Hvalfirði. Búið að vera leiðinda veður undanfarið en þennan laugardagsmorgun leit veðurspáin aðeins betur út. Það átti að rigna upp úr hádegi svo ég lagði snemma af stað (um 9 leitið). Stebbi vinnufélagi minn slóst í för og vorum við vel útbúnir. Frúin skutlaði okkur upp að Hvalfjarðargöngum svo við losnuðum við umferðar ruglið. Einnig eru rákir í vegkanntinn framhjá Kjalarnesi sem verður til þess að maður þarf að hjóla innar á veginum sem er rugl á þessum stað.
Veðrið lék við okkur, vegurinn var að þorna og sólin kíkti aðeins á okkur. Þegar við komum innar í fjörðinn tóku skemmtilegar brekkur á móti okkur. Það er ekkert skemmtilegra en brött brekka í góðu veðri. Við höfðum báðir nýlega keyrt Hvalfjörðinn svo við vissum að þetta biði eftir okkur.

Ekkert var um að ver í Hvalstöðinni en fljótlega eftir að við komum framhjá henni rákumst við á kindur á leið í réttir. Nokkrir bílar voru á ferðinni og kindur út um allt sem varð til þess að allir fór að gát. Nokkrar kindur þvældust fyrir okkur á veginum og maður hugsaði sér fréttina daginn eftir: Hjólreiðarmaður bombar á rollu í Hvalfirði!
Þegar við komum að þjóðvegi 1 stönsuðum við á bændamarkaði sem seldi allt frá fatnaði að hrefnukjöti. Hægt var að fá pulsu á staðnum og stóðst ég ekki freistinguna á meðan við biðum eftir að vera sóttir. Konan sem afgreiddi mig vildi greinilega vel því það var varla pláss fyrir pusluna í brauðinu þar sem það var fullt af lauk, steiktum og hráum, og sósum í öllum regnbogans litum.
Þetta var frábær ferð í alla staði og svæðið fjölbreytilegt og reynir á hjólreiðarmanninn í manni. Hlakka til að bruna þarna aftur.
Tæknilegar upplýsingar: Garmin data